Hvatning í ræktinni og mataræðinu
Það upplifa allir tímabil þar sem viljinn til að fara í ræktina og púla og puða eða löngunin í borða hollt eru hreinlega víðsfjarri. Þá getur verið gott að hafa hvatningarorð við höndina til að leggja frá sér Homeblest pakkann og koma rassinum upp úr sófanum og í ræktina.
-
Ekki grafa þína eigin gröf með hníf og gaffli
-
Þú ert það sem þú borðar
-
6-pack magavöðvar verða til í eldhúsinu, ekki í ræktinni
-
Sársauki er veikleikinn að yfirgefa líkamann
-
Andartak í munni, alla ævi á rassi
-
Eftir nammidag sem fór úr böndunum: Þó eitt dekk hafi sprungið er engin ástæða til að sprengja hin þrjú
-
Það bragðast ekkert ei
ns vel og að líta vel út
-
Þeir sem ná árangri gera það sem hinir þora ekki að gera
-
Þú ert það sem þú hugsar og ef þú hugsar heilbrigt þá ertu heilbrigð(ur)
-
Eini staðurinn þar sem árangur kemur á undan vinnu er í orðabókinni
-
Uppgjöf er ekki í boði sem valkostur
-
Eina hindrunin ert þú sjálfur
-
Viljinn til að breytast verður að vera meiri en viljinn til að vera óbreyttur
...Kveðja.....
Karrý kjúklingasalat
Karrý kjúklingasalat
1 tsk. indverskt karrý duft
100 gr. kjúklingabringa, grilluð og skorin í bita
100 gr. eldað heilhveitipasta
Ótakmarkað af grænu grænmeti...(kál, gúrkur, paprika..)
Blandið saman jógurt og karrý í skál
Setjið kjúkling og pasta útí og blandið vel.
Útbúið grænt grænmeti á disk og hellið kjúklingablöndu yfir.
Losnaðu við líkamsfitu með trefjaríku matarræði
Ef þú vilt létta þig, skaltu borða mat sem hefur lágt hlutfall fitu en hátt trefjainnihald. Tuttugu og fimm vísindalegar rannsóknir unnar af Drs. M. Yao og Susan Roberts í Tufts háskólanum sýndu að fólk sem borðaði mikið af trefjum og lítið af fitu misstu þrisvar sinnum meira af fitu en þeir sem minnkuðu bara við sig fituna.
Bandarískt matarræði til dæmis er hátt í fitu og lágt í trefjum. Þeir borða þennan feita mat af því að hann bragðast vel - flestir kjósa að borða steik eða kökusneið heldur en t.d. sellerí.
Vísindamennirnir komu með nokkrar ábendingar til að losna við líkamsfitu með tilliti til auknu trefjamagni og minni fitu. Borðið mat með hátt hlutfall af vatni, eins og t.d. ávexti og grænmeti ásamt nokkrum skömmtum af mat með heilum höfrum.
Verið varkár á mat með leynt fituinnihald - hitaeiningar eru þá fljótar að hrannast upp.
Prófaðu að taka trefjar(sem fæðubótarefni) og drekktu eitt glas af vatni með um 15 mínútur áður en þú borðar hverja máltíð. Trefjarnar binda vatnið og gefa þér meiri fyllingu.
Ef þið smellið á myndina farið þið inn á frábæra uppskrifta síðu
Nýtt 6 vikna útiæfingar, herþjálfun
Nýtt 6 vikna útiæfingar, herþjálfun
Sniðugt fyrir þá sem vilja krefjandi og umfram allt skemmtilegar og fjölbreyttar æfingar.
Æfingarnar byrja 1. september og er til 3. október
kl 18:15 - 19:15
Við verðum á þriðjudögum, fimmtudögum
og laugadögum kl 9:00
Frábært kerfi, góðar útiæfingar með skemmtilegum hópifólks
sem stefnir allt að ná sama markinu að ná góðum árangri
Styrktaræfingar og þolæfingar skilar líkamanumsterkum vöðvum, lungu, hjarta og æðakerfi. Allt sem hann þarfnast
Það er nú þegar byrjað að skrá sig í hópinn.
Vertu með og hafðu samband strax.
Upplýsingar hjá Settu í síma 8216060 og setta@isl.is
Ein góð uppskrift!
Fljótlegur fiskréttur í örbylgjuofni.
.
150g ýsuflök
1-2 tómatar
Smá rauðlaukur
Salt og pipar ..og e.t.v. smá hvítlauk
1 msk fjörmjólk
Gott grænt salat (gúrkur og grænt kál )með ca 1msk salatsósu
Brún hrísgrjón ( magn á stærð við golfbolta)
Fjörmjólkinni hellt í fat og fiskflök lögð í mjólkina- krydduð og þunnar tómatsneiðar lagðar yfir.
Plastfilma sett yfir fatið.
Eldað í örbylgjuofni í ca 3-4 mín (á að vera nóg til að ná fiskinum mjúkum og passlega elduðum.)
Fiskurinn verður mjög mjúkur og fínn í mjólkinni, fljótlegt og gott.

Ath; Þessi er frá Hreyfingu.
Rúgbrauð - Uppskrift frá mömmu
Innihald
-
4 bollar rúgmjöl
-
2 bollar hveiti og heilhveiti
-
2 tsk. salt
-
3 mat. matarsódi
-
4 tsk. lyftiduft
-
4- 5 bollar súrmjólk
-
500g síróp (ég nota Agavesýróp og minna af því)
Aðferð
-
Blandið öllum innihaldsefnum saman
-
Fyllið ca. 3 - 4 undarennu þernur (þær eru sterkari) til hálfs með deigi
-
Soðið í 5 tíma í lokuðu potti
Blandið öllum innihaldsefnum saman
Fyllið ca. 3 - 4 undarennu þernur (þær eru sterkari) til hálfs með deigi
Soðið í 5 tíma í lokuðu potti
Við þurfum ekki að fitna í fríinu
Eftir Michele Stanten, Prevention
Spurning: Hvernig kemst ég hjá því að bæta á mig kílóum í sumarfríinu án þess að neita mér um of mikið?
Svar: Það er ekki nærri því eins gaman að vera í fríi ef maður getur ekki notið þess að bragða á matnum á staðnum. Það er allt í lagi að dekra svolítið við sjálfan sig, þú hreyfir þig líklega meira á móti vegna þess að þú gengur meira og ferð í skoðunar ferðir. En farðu samt ekki yfir strikið. Ein eða tvær stórar máltíðir á góðum veitingastað og þú hefur náð aftur kaloríunum sem þú brenndir. En það er hægt að halda þyngdinnií skefjum.
Hér að neðan munum við vera með sex aðferðir til aðhalda kaloríunum í skefjum svo að það eina sem þú kemur með heim verður í ferðatöskunni þinni.
Gættu að því sem þú lætur ofan í þig á flugvellinum
Varastu að troða í þig feitum hamborgurum og fitandi kökum áður en þú ferð í loftið. Taktu með þér samloku (eða kauptu hana) úr grófu brauði, hnetur og appelsínu. Sparaðu kaloríurnar fyrir eitthvað virkilega gott í París eða á ströndum Maine.
Farðu í leikinn heilbrigðislögga, óhollustulögga
Þegar þú ert komin á staðinn skaltu fá þér almennilegt pasta. Þegar ég panta eitthvað alveg svívirðilegt borða ég helminginn af disknum og skipti svo um disk við manninn minn sem hefur samþykkt að panta hollasta en samt bragð besta matinn, grillaðan silung.
Ímyndaðu þér að þú sért matar rýnir
Ekkert bragðast betur en fyrsti bitinn, líttu á fríið sem bragðlauka ögrun. Í stað þess að panta þér sérstakan eftirrétt skaltu fá að smakka ostaköku vinar þíns og smakka á ísnum hjá krökkunum og hætta svo.
Æðislegt sumar í góðu formi
Frábært veður og góð mæting eins og undanfarnar æfingar.
Verð með tíma líka á þriðjudaga og fimmtudaga kl 18:00. Tímarnir mínir veða líka í sumar í fullu fjöri. þannig að það verður nóg að gera! ... (:
Vefjur - Gott og tekur engan tíma að gera þetta
(Notið það sem ykkur lystir. Blandið t,d. til helminga).
2 msk. sesamfræ.
1 tsk. salt.
1/2 dl. olía.
150-175 ml heitt vatn,
Blanda þurrefnum saman og svo olíu nuddað inn í.
Bætið vatninu útí, litlu í einu og noðið.
Skiptið deginu í 8 hluti. rúllið þetta þunnt eins og tórillu köku.
Steikið brauðin á heitri og þurri pönnu í um 1 mín hvor hlið.
Þetta er frábært brauð til að nota í fylingar þegar maður hefur engan tíma og ekkert til að borða. Þarf ekki að baka allt í einu.
Mjög vinsælt á mínum bæ. Kveðja Setta.
Skinkuhorn Frá Hallveigu Selmu
100 gr.smjör eða 1dl olía
1/2 lítri volg mjólk
1 pk. þurrger
60 gr sykur
3/4 tsk salt
900 gr hveiti/heilhveiti.
tvö stór búnt skinka
1 lítið oststykki
1 egg
Öllu þessu blandað saman og hnoðað, látið hefast í 40 mín, yfir heitu vatni. Á meðan deigið hefast er ágætt að skera skinkuna í strimla og jafnvel ostinn í sneiðar.Þegar degið er tilbúið þá bú til lengju úr því og skipta því upp í ca 8 parta. Fletja svo einn og einn út í einu og skera í horn, raða skinku og osti á og rúlla hornunum upp byrja á breiða endanum og rúlla niður. Raða á plötu og pensla yfir með eggi, baka við 175 gráður á blæstri í 10-12 mín.
Hérna er uppskrift af bóndabrauði :) Frá Margréti
50 g Heilhveiti
50 g Rúgmjöl
2 tsk Þurrger
3 dl Mysa (eða vatn)
2 tsk Salt
1 msk Smjör (eða matarolía)
1 msk Síróp
* Blandið saman mjöli og þurrgeri í skál.
* Velgið mysuna og blandið saman við mjölið, ásamt salti, smjöri og sírópi.
* Hnoðið degið vel og leggið svo í skál með rökum klút eða plastfilmu yfir. Látið hefast í 1 klst.
* Sláið degið niður og mótið fallegt brauð (eða setjið í brauðform), hyljið degið og það látið hefast í uþb. 45 mín eða þar til það hefur tvöfaldað sig.
* Bakið á 180°C í uþb. 35 mín.
Hugsaðu þig granna
Borðar þú með heilanum. Ef þú vilt léttast og ekki verða leið á aðhaldinu, þá verðurðu beina jákvæðum hugsunum um góða frammistöðu.
*
Áskorun: Þú borðar eftirrétt þó að þú hafir ætlað þér að sleppa því.
Lausn: Í stað þess að hugsa: „Ó nei, þarna klúðraði ég þessu aftur. Ég er ömurleg og get aldrei komist í gegnum þetta átak, ég gefst upp", skaltu reyna að hugsa: „Þetta hafði ég greinilega þörf fyrir. Það var gott að ég fékk mér ekki tvisvar á diskinn. Og það er betra að halda áfram, þótt það taki aðeins lengri tíma, en að gefast alveg upp."
*
Áskorun: Þú situr fyrir framan sjónvarpið á föstudagskvöldi og vorkennir sjálfri þér: „Það er ekki þess virði að lifa án þess að eiga stórt súkkulaðistykki til að fá sér ásamt nokkrum rauðvínsglösum."
Lausn: Í stað þess að æða út í sjoppu og ráðast á sælgætishillurnar, skaltu byrja að fyrirbyggja þetta strax seinni hluta dagsins: „Þetta hefur verið erfið vika og ég finn að mig langar til að gefast upp ef ég fæ ekki eitthvað smá sætt. Ég kaupi dálítið af ávöxtum og einn poka af hlaupi - það er minna fitandi en súkkulaði - og fæ mér eitt hvítvínsglas." Og njóttu þess með góðri samvisku.
Áskorun: Þú ert búin að vera á fullu allan daginn og misstir af hádegismatnum. Þú þarft að koma við á bensínstöð til að fylla á bílinn og þegar þú ert að borga finnurðu þennan dýrindis ilm af nýbökuðum kökum.
Lausn: Í stað þess að hugsa: „Ég verð að fá mér eina! Ég fékk mér engan hádegismat," þá geturðu hugsað: „Ef það er lífsnauðsynlegt að fá sér köku þá verður svo að vera. En þá ætla ég líka að kaupa hana í almennilegu bakaríi og fyrst ætla ég að fá mér gróft rúnnstykki." Kannski getur líka hjálpað gegn svona freistingum að eiga til smá birgðir af gulrótum eða ávöxtum í bílnum eða í vinnunni.
*
Áskorun: Þú stendur fyrir framan spegilinn og virðir fyrir þér spikfellingarnar með viðbjóði. Þú hefur á tilfinningunni að það muni líða margar aldir áður en átakið fer að sýna einhvern árangur og þér finnst þetta allt saman óyfirstíganlegt.
Lausn: Reyndu að líta á þig með ást og umhyggju. Hugsaðu um hvaðan aukakílóin komu. Hefurðu verið stressuð eða óhamingjusöm? Hugsaðu líka um að fyrir hver 250 grömm sem þú missir þá hverfur felling á stærð við smjörlíkisstykki. Líkami þinn á skilið umhyggju og hana geturðu veitt honum með því að léttast.
Fengið lánað úr einhverju blaði
Bakað í kreppunni
Ég byrja alltaf á því að blanda þurrefnum vel saman í skál.
Hellið vökvanum út í og blandið varlega saman tilbúið strax.
*
Speltsnúðar fra Sollu Eiriks.
4 dl spelt
2 tsk. vínsteinslyftiduft
½ -1 tsk. sjávarsalt
1 msk. kanill
2 msk. góða matarolíu
1½ ab- mjólk eða mjólk
Þegar deigið er orðið gott til að fletja út er smurt yfir eða á milli sultu ég var með jarðaberjasultu og smá kanilsykur. Mjög gott..
*
Skinku og ostahorn.
4 dl spelt
2 tsk. vínsteinslyftiduft
½ -1 tsk. sjávarsalt
2 msk. góða matarolíu
1½. Heitt vatn og mjólk
Þegar deigið er orðið gott til að fletja út er sett ostur og skinka á milli. Mjög gott líka..
*
Súpubrauð með ab mjólk.
600 gr hveiti
250 heilhveiti
Smá fræ
2 tsk salt
3 tsk lyftiduft
5 dl volgt vatn
3 dl ab- mjólk
Bakið sem bollur eða muffur byrjar á brauðinu og gerir súpunna á meðan brauðið bakast í 15 -20 mín
*
Það er ekki mikið mál að gera holla súpu hún er yfirleit gerð af því sem er til í eldhúsinu og þá það krydd sem á við kjötið, fiskinn eða kjúklinginn.
*
Holl og góð fiskisúpa
Skerið fisk í bita og skerið grænmeti í bita.
Byrið að steikja grænmetið í 1 - 2 mín. (t.d laukur, blaðlaukur, hvítlauksrif, gulrætur, sætar kartöflur, kartöflur, spínat, paprika, tómatar) stráið karrí yfir.
Ca 12 dl fiskikraftur (teningur og vatn).
1 dós tómatkraftur, tómatasúpu eða það sem er til í eldhúsinu (má sleppa).
Timjan, salt pipar eða got sjávarréttarkrydd
Látið súpuna krauma í 10- 15 mín fiskurinn síður í 2-3 mín.
*
Öll þessi brauð voru bökuð í dag
Blandið þurrefnum vel saman í skál.
Hellið vökvanum út í og blandið varlega saman.
Setjið deigið í smurt brauðform ( þarf ekki að smyrja siliconform þau eru æði) og bakið í 50 mín við180- 200C.
Speltbrauð (frá Sollu Eirisks)
5 dl spelt
1 dl sólblómafræ, sesamfræ eða kókosmjöl
3 tsk. vínsteinslyftiduft
½ -1 tsk. sjávarsalt
1½ - 2 dl. undarrenna eða mjólk
1½ - 2 dl. sjóðandi heitt vatn
Á þessu stigi er hægt að setja ýmislegt fleira saman við brauðdeigið, t.d. sólþurrkaða tómata, ólífur, gulrætur, hvítlauk eða kryddjurtir. Ég gerði það samt ekki í dag.
Kryddbrauð.
4 dl hveiti
4 dl haframjöl
1 msk hrásykur
2 tsk natron
1 tsk negull
1 tsk kanill
1 tsk engifer
1 tsk. sjávarsalt
ca 3 - 4 dl mjólk.
Þetta var æði.
Einfalt rúgbrauð (frá Sollu Eirisks smá breytt)
2 dl rúgmjöl
2 1/2 spelt
1 msk. salt
1 msk. vínsteinslyftiduft,
Smá sesamfræ eða rúgmjöl.
1 dl rúsínur
2 1/2 undanrennu og AB mjólk.
Það þýðir lítið að vera með góðar áætlanir ef þú fylgir þeim ekki eftir!
Það er hann sem keyrir þetta áfram.
Það er aginn sem hvetur þig til þess að fara í ræktina
hvort þú sért í stuði eða ekki.
Það er aginn sem keyrir þig í gegnum æfinguna
en ekki bara í gegnum hreyfingarnar.
Það er aginn sem lætur þig halda í gott mataræði
á hverjum einasta degi.
Aginn hvetur þig til að setja sér markmið og ná langt.
*
Mætum í ræktina í sumar, með stæl. Við höfum sýnt það áður að tímarnir verða yfir allt sumarið og leggjum okkur fram um að gera það líka þetta árið ..
Æfum vel, oft eða reglulega. Þá er ýmislegt að gerast hjá okkur,
... Við verðum fallegt og stælt fólk.
Leggjum okkur fram til að öðlast það sem við viljum ná..
Gleðilegt æfingar sumar.
Páskakaka - einföld og fljótleg frá Sollu Eirisks
Súkkulaðikaka með kúrbít
200g spelt, t.d. fínt og gróft til helminga
50g lífrænt kakóduft
2 tsk vínsteinslyftiduft
¼ tsk Himalaya salt
1 ½ dl agavesýróp
2 brún egg
1 ½ dl kaldpressuð kókosolía eða kaldpressuð ólífuolia
225g kúrbítur, rifinn á rifjárni (ég nota frekar gróft)
100g 70% súkkulaði til að bræða og hella yfir kökuna
smá rifinn kúrbítur + kókosmjöl sem er þurristað á pönnu og stráð yfir kökuna
blandið þurrefnunum saman í skál, hrærið saman agavesýrópi + kókosolíu + eggjum í hrærivél/matvinnsluvél og blandið síðan útí þurrefnablönduna, bætið rifnum kúrbít þar útí. Sejið í hringlaga kökuform og bakið við 180°C í um 25 - 30 mín.
æðislegt að bræða 70% súkkulaði og hella yfir kökuna og strá síðan yfir smá blöndu af rifnum kúrbít og kókosmjöli
Kannaðu hollustuna - Borðar þú nógu hollan mat?
www.lydheilsustod.is/greinar/greinasafn/manneldi//nr/337
Mexíkönsk kjúklingasúpa - Frá Önnu
2-3 hvítlauksrif
3-5 Laukar
1 stk. Chilipipar (fræin soðin með ef fólk vill mjög sterka súpu) - má líka nota rauða papriku
1 flaska granine tómatsafi
5 dl kjúklingasoð (vatn og 1 teningur)
5 dl kjötsoð (vatn og 1 teningur)
1 tsk Cumin (má líka nota coriander)
2 tsk Worchestersósa
1 tsk Chilikrydd
1/2 til 1 tsk Cayennepipar
2 dósir niðursoðnir hakkaðir tómatar
1 eldaður kjúklingur eða óeldaðar kjúklingabringur skornar í litla bita og settar út í súpuna í ca. 5 mín svo þær eldist í gegn.
Laukurinn er steiktur aðeins á pönnu, ekki brúnaður. Allt látið í pott nema kjúklingurinn og soðið í klukkutíma eða lengur. Gætið að því að soðið sýður niður og þarf því jafnvel að bæta vatni út í.
Kjúklingurinn er skorin niður og settur út í. Borið fram með sýrðum rjóma, rifnum osti og nachos flögum.
Súpan er mjög sterk í fyrstu en lagast eftir því sem hún er soðin lengur. Einnig má minnka chilikryddið og cayennepiparinn um helming.
____________________
Mér finnst gott að hluta hráan heilan kjúlla niður og sjóða hann í vatni, taka hann svo upp úr, sigta soðið og nota sem grunn í súpuna. Sker hann síðan niður og set út í súpuna rétt áður en hún er borin fram. Set samt teninga út í og kryddið smakka ég til.
____________________________
Borið fram með sýrðum rjóma, rifnum osti og nachos flögum og þetta sett út í súpuna í þessari röð :-)
Nammi gott :-)
Hér er ég
Jæja hér er ég mætt aftur eftir langt hlé. Brjálað að gera hjá mér þetta árið.
#
Öll höfum við nóg að gera og öll viljum við vera grönn stælt og allt mögulegt.
Að neita sér um góða hluti eins og súkkulaði er ekki létt og þægilegt er að þurfa að æfa sem minnst.
Matræðið er bara svo stór hlutur í þessu öllu saman. Íþróttakennara og leiðbeinendur sem eru á fullu alla daga en eru samt 10 kg eða meira of þung/ur.
#
Við erum manneskjur, fullorðið fólk en oft eins og börn. Börn hafa ekki gott af sykri frekar en við. En þau hreyfa sig mun meira en við og brenna miklu meira. Við verðum líka að sætta okkur við það að við getum ekki haft hátíð allt árið.
#
Ég fór út að borða á jólahlaðborð með góðri vinkonu minni fyrir nokkuð mörgum árum. Þetta átti að sjálfsögðu að vera mjög góður matur og við vorum að borða desertinn sem var jólagrautur. Ég hámaði þetta í mig en hún var neislugrönn. Enda flott í vextinum.
Hún sagði svo allt í einu finnst þér þetta svona gott. Já, já sagði ég, hugsaði svo þetta var kannski ekki svo gott, hörð hrisgrjón fullt af rjóma, sykri, egg og einhver sulta.
Hvað var maður að háma þetta í sig?
Þetta var ekkert gott, bara af því þetta var desert átti þetta að vera gott.
#
Málið er við borðum of oft án þess að hugsa og skemmum fyrir okkur. Þá er ekki hægt að búast við að við séum með stinnan rass og sléttan maga.
Verðum sátt við útlitið eða gerum eitthvað í því. Þetta er okkar val, það er bara þannig....
Við getur tekið okkur á og það er léttara en við höldum. Eigiði góðar stundir sjáumst hress á æfingu kveðja Setta
Hollur og góður kjúklingaréttur frá Hreyfingu.
Hollur og góður kjúklingaréttur!
4-5 kjúklingabringur, skornar í sneiðar
3 msk olia
2 litlir laukar, saxaðir
1 ½ msk gott karrý (50-50 karry og karry delux)
4 hvítlauksrif, söxuð
1 ½ cm ferskt engifer, raspað
1 kjúklingarteningur
1 ½ dl gulrótarsafi (granini)
1 ½ dl eplasafi
250 gr kókosmjólk
1 tsk salt
1 tsk sykur
2 tómatar, saxaðir
1 msk ferskt kóriander, saxað
1 hrein jógúrt
Hitið olíu og steikið lauk ásamt karrý. Setjið því næst kjúkling, kjúklingatening, hvítlauk og engifer út á pönnuna og steikið. Setjið svo gulrótarsafa, eplasafa, kókosmjólk, salt og sykur út í og látið malla í 15-25 mín. Setjið svo kóríander, tómata og hreina jógúrt saman við í lokin rétt áður en borið er fram.
Gott er að bera fram með salati, brúnum hrísgrjónum og jafnvel brauði..jpg)
